Tannhirða með gervitennur

Mikilvægt er að sinna tann- og munnhirðu með gervitennur og tannparta alveg eins og þegar um er að ræða náttúrulegar líkamstennur.

Bursta skal bæði gervitennurnar og munnholið tvisvar á dag. Gervitennurnar eru teknar úr munni og burstaðar yfir vaski (með vatni eða blautu þvottastykki svo þær brotni ekki ef þú missir þær í vaskinn). Nota skal sápu eða gervitannasápu og gervitannabursta eða venjulegn tannbursta. Það þarf að bursta alla hluta og hliðar gervitannanna vel og huga sérstaklega vel að krókum og stálhlutum á tannpörtum. Það á aldrei að nota venjulegt tannkrem á gervitennur vegna þess að slípimassi í tannkreminu rispar yfirborðið á plastinu. Ef einhverjar náttúrulegar líkamstennur eru til staðar í munnholinu þá skal bursta þær vel með tannkremi og nota tannþráð. Mikilvægt er að halda munnholinu hreinu líka (gómum og tungu) og gott er að nota mjög mjúkan tannbursta, grisju eða blautan þvottapoka í það.

Ef þú hefur tennurnar ekki í munni yfir nóttu þá skaltu setja þær í box eða skál með vatni eftir að hreinsa þær.

Hér eru myndbönd á vefsíðu Heilsuveru sem sýnir vel hvernig á að þrífa gervitennurnar