Tinna Ásdís Jónasdóttir útskrifaðist sem tannsmiður frá Háskóla Íslands árið 2015. Hún starfaði við alhliða tannsmíðavinnu til ársins 2019 en þá hélt hún til Danmerkur í nám í klínískum tannmíðum við háskólann í Árósum og útskrifaðist þaðan árið 2021. Síðan þá hefur Tinna starfað sem klínískur tannsmiður á Laugavegi 126 og Fellsmúla 26.
Tannlæknstofan á Laugaveginum stofnaði afi hennar, Birgir Jóhannson tannlæknir árið 1957 og síðar bættist faðir hennar við, Jónas Birgisson tannlæknir en hann starfar þar enn í dag ásamt 2 öðrum starfsmönnum (aðstoð tannsmiður).
Tannlæknastofan í Fellsmúlanum heitir Krýna og er staðsett í Hreyfilshúsinu við Grensásveg. Krýna er mun stærri en þar eru 10 meðferðarrými og um 20 starfsmenn.